Hvernig eru vörur Hårklinikken frábrugðnar öðrum?Updated a year ago
Hvað er svona sérstakt við vörur Hårklinikken?
Vörurnar okkar er ólíkar öðrum að því leyti að við setjum hársvörðinn í fyrsta sæti. Það hefur verið áherslan í næstum þrjá áratugi. Rannsóknir okkar á hárþynningu og ástandi hársvarðar eru umfangsmiklar. Þekkingin kemur ekki síst í gegnum náið samstarf við viðskiptavini á stofum okkar í þremur heimsálfum auk vísindalegra rannsókna sem fara fram í tíu löndum. Þetta hefur gert okkur kleift að fylgjast náið með hvernig hárþynning og vandamál í hársverði birtast í ólíku loftslagi; köldu, hlýju, röku og þurru.
Hvernig virkar meðferðin?
Við leggjum áherslu á að sérhanna og blanda meðferðir fyrir hársvörð í höndunum og stilla svo blönduna reglulega yfir meðferðartímann. Öll hármeðferðin er miðuð að því að skapa þær aðstæður sem hentugastar þykja fyrir heilbrigði hársvarðar og hársekkja. Extract vekur áður óvirka hársekki til lífsins og eykur ummál hársins sem fyrir er en rakavörurnar bæta gæði, heilbrigði, áferð og ljóma hársins án þess að þekja það með sílíkonefnum eða álíka innihaldsefnum. Sjampóin eru ekki bara venjulegar hársápur, þau fara mildum höndum um hársvörð og hársekki svo aðstæður verði sem bestar fyrir hárvöxt.
Hvernig veit ég hvaða meðferð er best fyrir mig?
Taktu þetta stutta hárpróf svo við getum mælt með meðferð fyrir þig.
https://www.harklinikken.com/pages/hair-assessment">TAKA HÁRPRÓFIÐ>